Sjokk!!!
Já, við erum búin að koma okkur svona líka ágætlega fyrir og líður alveg hreint glimrandi vel... alveg þangað til í gærkveldi! Þá bankaði nágranninn sem býr fyrir ofan okkur uppá. Hann var með slæmar fréttir: Það eru veggjatítlur í húsinu! Eftir mikið grúsk og símtöl kom í ljós að það besta fyrir okkur í stöðunni er að láta kaupin ganga til baka, þannig töpum við engu, og flytja aftur til mömmu! En svo sagði systir mín rétt áðan að vinkona sín hefði lent í þessu og það dugði að hita húsið upp í ákveðið hitastig í ákveðið mikinn tíma og þá drápust títlurnar. Við skulum ekki panikka (aaaaaaaah! Panikk!!! más, más, snökt, snökt) og vona það besta.
skrifað af Runa Vala
kl: 19:19
|